Mourinho orðaður við Real Madrid - Curtis Jones til Aston Villa?
banner
   mið 07. febrúar 2024 10:07
Elvar Geir Magnússon
Brighton kaupir Ibrahim Osman frá Nordsjælland
Enska úrvalsdeildarfélagið Brighton hefur komist að samkomulagi við danska félagið Nordsjælland um kaup á sóknarleikmanninum Ibrahim Osman.

Osman er nítján ára og kemur úr hinni frægu Right to Dream akademíu í Gana og lék sinn fyrsta aðalliðsleik fyrir Nordsjælland í febrúar á síðasta ári.

Sagt er að kaupverðið sé um 17 milljónir punda en Osman hefur spilað 27 leiki fyrir Nordsjælland og skorað tvö mörk.

Hann kemur úr sömu akademíu og Simon Adingra sem Brighton keypti frá Nordsjælland 2022.
Slapp
banner