Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   mið 07. febrúar 2024 19:14
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Byrjunarlið kvöldsins: Þrjár breytingar hjá Chelsea - Cash inn fyrir Konsa
Mynd: EPA

Aston Villa fær Chelsea í heimsókn í enska bikarnum í kvöld en sigurvegarinn fær Leeds í heimsókn í næstu umferð.


Það er ein breyting á liði Aston Villa sem vann Sheffield United um helgina. Ezri Konsa meiddist í leiknum en Matty Cash kemur inn í hans stað.

Mauricio Pochettino er undir mikilli pressu en hann gerir þrjár breytingar á liði Chelsea sem tapaði gegn Wolves um helgina.

Nicolas Jackson og Noni Madueke koma inn í fremstu víglínu fyrir Raheem Sterling og Christopher Nkunku. Benoit Badiashile kemur inn í vörnina en Thiago Silva sest á bekkinn.

Átta breytingar eru á liði Nottingham Forest en liðið mætir Bristol City í kvöld. Liðin keppast um að mæta Man Utd.

Aston Villa: Martinez, Cash, Diego Carlos, Lenglet, Moreno, Bailey, Kamara, Douglas Luiz, McGinn (c), Tielemens, Watkins.

Chelsea: Petrovic, Gusto, Disasi, Badiashile, Chilwell (c), Gallagher, Caicedo, Enzo, Madueke, Jackson, Palmer

Nottingham Forest: Turner, Niakhate, Omobamidele, Felipe, Toffolo, Montiel, Danilo, Kouyate, Elanga, Gibbs-White, Origi.


Athugasemdir
banner
banner