Mourinho orðaður við Real Madrid - Curtis Jones til Aston Villa?
   mið 07. febrúar 2024 22:33
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Enski bikarinn: Nottingham Forest mætir Man Utd
Callum Hudson-Odoi
Callum Hudson-Odoi
Mynd: EPA

Nott. Forest 1 - 1 Bristol City (5-3 í vítaspyrnukeppni)
1-0 Divock Origi ('8 )
1-1 Jason Knight ('14 )


Nottingham Forest fékk Bristol City í heimsókn í enska bikarnum í kvöld. Sigurvegarinn mætir Manchester United í næstu umferð.

Forest komst yfir snemma leiks þegar Divock Origi stýrði boltanum í netið eftir skalla frá Felipe. Jason Knight jafnaði metin stuttu síðar.

Fleira markvert gerðist ekki í venjulegum leiktíma svo farið var í framlengingu.

Gestirnir voru mun sterkari undir lokin en tókst á einhvern ótrúlegan hátt ekki að skora svo grípa þurfti til vítaspyrnukeppni.

Callum Hudson-Odoi skoraði úr annarri spyrnu Nottingham Forest og kom liðinu í 2-1. Matt Turner varði aðra spyrnu Bristol City. Bæði lið skoruðu úr næstu spyrnum en það var Taiwo Awoniyi sem skoraði úr síðustu spyrnunni og tryggði Forest sigurinn.


Slapp
banner
banner