Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   mið 07. febrúar 2024 19:42
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Hákon ónotaður varamaður þriðja leikinn í röð - Sara Björk mætir Alexöndru í undanúrslitum
Kvenaboltinn

Hákon Arnar Haraldsson var ónotaður varamaður þegar Lille féll úr leik í 16 liða úrslitum franska bikarsins eftir tap gegn Lyon í kvöld. Hann skoraði sigurmark í síðasta bikarleik en ekkert spila síðan.


Gift Orban gekk til liðs við Lyon frá Gent í janúar en hann kom liðinu yfir eftir sendingu frá Rayan Cherki en þetta var fyrsta mark hans fyrir félagið.

Cherki tvöfaldaði forystu Lyon með marki strax í upphafi síðari hálfleiks. Alexsandro klóraði í bakkann fyrir Lille stuttu síðar en nær komst liðið ekki og þar við sat.

Sara Björk Gunnarsdóttir var ekki í leikmannahópi Juventus sem vann Sampdoria 1-0 í átta liða úrslitum ítalska bikarsins.

Juventus mætir Fiorentina í undanúrslitum en Alexandra Jóhannsdóttir spilar með Fiorentina. AC Milan og Roma mætast í hinum undanúrslitaleiknum en Guðný Árnadóttir er leikmaður Milan.


Athugasemdir
banner
banner