Argentínski vængmaðurinn Alejandro Garnacho er að eiga ágætis tímabil með Manchester United en ef kallið kæmi frá Spáni, þá myndi hann taka Real Madrid fram yfir Barcelona.
Garnacho er 19 ára gamall að spila sitt fyrsta tímabil sem fastamaður í liði United.
Hann er þegar búinn að skora flottasta mark tímabilsins, sem hann gerði með stórkostlegri bakfallsspyrnu gegn Everton, en þá hefur hann líka komið með ferska vinda inn í sóknarleik United.
Á þessu tímabili hefur hann gert sjö mörk í öllum keppnum ásamt því að gera tvær stoðsendingar.
Svar hans var afar einfalt þegar hann var spurður að því hvort hann héldi meira upp á: Barcelona eða Real Madrid.
„Real Madrid, frekar einfalt,“ sagði Garnacho.
Þetta ætti ekki að koma neinum á óvart. Hann er uppalinn í Madríd og þó að hann hafi farið í gegnum akademíuna hjá nágrönnunum í Atlético, þá eru tengslin við Real Madrid sterkari.
Fyrirmynd hans, Cristiano Ronaldo, spilaði með liðinu í níu ár og er sá markahæsti í sögu félagsins.
¿Madrid o Barça?
— ????????????? (@GxlDeRudiger) February 6, 2024
Garnacho: Real Madrid, simple pic.twitter.com/7rddQZmrCc
Athugasemdir

