Íslandsvinurinn Bo Henriksen mun í sumar hætta sem þjálfari Zürich í Sviss en það er Tipsbladet sem greinir frá því í dag.
Samningur hans mun enda eftir tímabilið og ætlar hann ekki að framlengja. Hann ætlar að halda á nýjan vettvang.
Henriksen, sem spilaði um gott skeið með ÍBV, Val og Fram hér á Íslandi, stýrði Horsens og Midtjylland í Danmörku áður en hann hélt til Zürich í fyrra. Þar hefur hann verið að vinna fínt starf og vakið áhuga annarra félaga.
Henriksen var fyrir stuttu orðaður við Köln í þýsku úrvalsdeildinni og við Standard Liege í Belgíu.
Það verður svo sannarlega áhugavert að sjá hvað hann tekur sér fyrir hendur næst en Zürich er sem stendur í fimmta sæti svissnesku úrvalsdeildarinnar.
Athugasemdir


