Albert Guðmundsson hefur átt frábært tímabil með Genoa í ítölsku A-deildinni og fjölmiðlar í landinu halda áfram að orða hann við stærri félög.
Hann er orðaður við stórlið Juventus sem gæti þurft að fylla skarð ítalska landsliðsmannsins Federico Chiesa ef hann skrifar ekki undir framlengingu á samningi sínum.
Hann er orðaður við stórlið Juventus sem gæti þurft að fylla skarð ítalska landsliðsmannsins Federico Chiesa ef hann skrifar ekki undir framlengingu á samningi sínum.
Samningur Chiesa er í óvissu en samningur hans gildir til 2025. Ef hann vill ekki framlengja mun Juve hlusta á tilboð í hann í sumar.
Genoa hafnaði tilboðum frá Fiorentina í Albert í janúarglugganum og setti 40 milljóna evra verðmiða á hann samkvæmt fréttum.
Vefsíðan Football Italia kallar Albert reyndar Alfreð Guðmundsson í sinni umfjöllun.
Þekki engan Alfreð Guðmundsson ???????????
— Gummi Ben ????? (@GummiBen) February 7, 2024
Athugasemdir



