Dregið verður í Þjóðadeild UEFA á morgun, fimmtudaginn 8. febrúar, í París og hefst drátturinn kl. 17:00 að íslenskum tíma.
Ísland verður í öðrum styrkleikaflokki í B-deild Þjóðadeildarinnar ásamt Finnlandi, Úkraínu og Noregi og getur því ekki verið í riðli með þeim. Hér að neðan er hægt að sjá alla styrkleikaflokka B-deildar.
Ísland gæti verið með Englandi í riðli en liðin mætast í vináttulandsleik á Wembley í júní.
Keppnin verður leikin í september, október og nóvember.

Liðin í B-deild Þjóðadeildarinnar:
Fyrsti pottur:
Austurríki
Tékkland
England
Wales
Annar pottur:
Finnland
Úkraína
Ísland
Noregur
Þriðji pottur:
Slóvenía
Írland
Albanía
Svartfjallaland
Fjórði pottur:
Georgía
Grikkland
Tyrkland
Kasakstan
05.02.2024 10:03
Ísland leikur við England á Wembley í júní
Athugasemdir