Mourinho orðaður við Real Madrid - Curtis Jones til Aston Villa?
   mið 07. febrúar 2024 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Klásúla í samningi Guirassy áfram virk
Serhou Guirassy, leikmaður Stuttgart í Þýskalandi, fæst fyrir tombóluverð á markaðnum í sumar en þetta segir Fabrizio Romano á X.

Þessi 27 ára gamli sóknarmaður hefur skorað 17 mörk í þýsku deildinni á tímabilinu, en aðeins Harry Kane hefur skorað fleiri mörk en hann.

Félög um alla Evrópu vildu fá hann í janúarglugganum en Guirassy tók ákvörðun um að klára tímabilið með Stuttgart.

Hann mun skoða sín mál aftur í sumar en 17,5 milljóna evra klásúla hans verður áfram virk.

Borussia Dortmund, Fulham, Manchester United og Newcastle eru öll áhugasöm um kappann.
Slapp
banner
banner
banner