Gísli Eyjólfsson var í gær kynntur hjá sænska úrvalsdeildarfélaginu Halmstad, en hann var keyptur til félagsins frá Breiðabliki.
Blikinn hefur verið með allra bestu leikmönnum efstu deildar síðustu ár og er nú að uppskera alla erfiðisvinnuna.
Hann samdi við Íslendingafélag Halmstad í gær og hittir þar Birni Snæ Ingason, sem kom til félagsins frá Víkingi um áramótin.
Það vakti sérstaka athygli í kynningu Halmstad á Gísla að treyja hans var vitlaust merkt. Aftan á treyjunni stóð 'Eyjlófsson'.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem slík mistök eru gerð með íslenska leikmenn. Birkir BJarnason fékk sérstaka treyju afhenda fyrir landsleik gegn Norður-Makedóníu. Sú treyja var merkt 'B. Bjarnson' og þá vakti athygli að búningastjóri Liverpool skrifaði nafn Dominik Szoboszlai vitlaust í sumar.
Það er vonandi að Halmstad nái nafninu rétt þegar tímabilið hefst í Svíþjóð.
Welcome to HBK, ????????????????????? ????????????????????????????????????????? ???? pic.twitter.com/1B37XtAerY
— Halmstads Bollklubb (@HalmstadsBK) February 6, 2024
Athugasemdir




