Mourinho orðaður við Real Madrid - Curtis Jones til Aston Villa?
   mið 07. febrúar 2024 09:00
Brynjar Ingi Erluson
Komast ekki upp með asnagang hjá De Rossi - „Þarft að vera klókur“
Mynd: EPA
Daniele De Rossi, þjálfari Roma, var að mestu leyti sáttur með 4-0 sigur liðsins á Cagliari á dögunum, en vill þó að leikmennirnir takmarki heimskulega hegðun.

Roma hefur unnið alla þrjá deildarleiki sína undir stjórn De Rossi en hann vill helst af öllu hafa alla leikmenn til taks.

Romelu Lukaku og Leandro Paredes voru báðir tæpir í leiknum. Lukaku lenti upp á kant við Yerry Mina, leikmann Cagliari, en slapp við spjald á meðan Paredes fékk gula spjaldið eftir viðskipti sín við Nahitan Nandez.

„Ég er hrifinn af því þegar leikmenn reyna að vernda liðsfélaga sína, en þegar þú ert 4-0 yfir þá þarftu að vera klókur. Við þurfum að henda út þessari hegðun því að fá gult spjald þegar þú ert 4-0 yfir er bara heimska. Við höfum ekki efni á því að missa þessa leikmenn,“ sagði De Rossi sem talaði einnig um Paredes þyrfti að bæta aðeins leik sinn.

„Það eru fáir miðjumenn í heiminum með gæði eins og hann, en hann verður að bæta hvernig hann staðsetur sig, koma sér í leið boltans. Hann þarf að hlusta á mig því ég var góður í þessu. Hann getur verið afkastameiri í varnarleik sínum og það án þess að þurfa hlaupa eins og maður sem er með fjögur lungu,“ sagði De Rossi.
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 33 25 3 5 78 29 +49 78
2 Milan 33 19 9 5 48 27 +21 66
3 Napoli 33 20 6 7 48 33 +15 66
4 Juventus 32 17 9 6 55 29 +26 60
5 Como 33 16 10 7 57 28 +29 58
6 Roma 33 18 4 11 46 29 +17 58
7 Atalanta 33 14 12 7 45 29 +16 54
8 Bologna 32 14 6 12 42 37 +5 48
9 Lazio 33 12 11 10 34 30 +4 47
10 Sassuolo 33 13 6 14 41 44 -3 45
11 Udinese 33 12 7 14 38 43 -5 43
12 Torino 33 11 7 15 37 54 -17 40
13 Parma 33 9 12 12 24 40 -16 39
14 Genoa 33 9 10 14 39 46 -7 37
15 Fiorentina 32 8 11 13 37 44 -7 35
16 Cagliari 33 8 9 16 33 47 -14 33
17 Cremonese 33 6 10 17 26 47 -21 28
18 Lecce 32 7 6 19 21 45 -24 27
19 Pisa 33 2 13 18 24 59 -35 19
20 Verona 33 3 9 21 23 56 -33 18
Slapp
banner