Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   mið 07. febrúar 2024 23:33
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Mbappe sá fyrsti til að brjóta þrjátíu marka múrinn
Mynd: EPA

Kylian Mbappe er búinn að skora þrjátíu mörk á tímabilinu í öllum keppnum en hann er sá fyrsti sem nær því í öllum stærstu deildum Evrópu.


Hann kom liðinu yfir gegn Brest í franska bikarnum í kvöld en Danilo bætti öðru markinu við fyrir lok fyrri hálfleiks.

Brest minnkaði muninn en missti mann af velli með rautt spjald stuttu síðar.

Það var komið fram í uppbótatíma þegar varamaðurinn Goncalo Ramos gulltryggði sigur PSG.

Liðið er því komið áfram í átta liða úrslit.


Athugasemdir
banner
banner