Emmanuel Petit, fyrrum leikmaður Chelsea, segir að Mauricio Pochettino hafi ekki hugmynd um hvað hann sé að gera hjá félaginu.
Erfiðleikar Chelsea innan vallar halda áfram og liðið situr í ellefta sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Vangaveltur hafa verið í gangi um hvort Pochettino sé á barmi brottreksturs en hann er ekki að ná betri árangri en Graham Potter sem var látinn fara á síðasta tímabili.
Chelsea tapaði 4-2 gegn Úlfunum í síðasta deildarleik.

„Ég var svo svekktur með frammistöðu Chelsea gegn Wolves, þetta voru mikil vonbrigði. Liðið virkaði svo óskipulagt, leikfræðin var í tómu tjónu, engin barátta, samskipti eða karakter. Ég vorkenni stuðningsmönnum Chelsea," segir Petit.
„Af hverju notaði hann Nkunku einan sem fremsta mann? Veit hann ekki hvað Nkunku gerir best? Í Þýskalandi og Frakklandi er vel þekkt að hann getur ekki verið einn fremstur og er aldrei settur í þá stöðu. Hann er mjög góður sem 'tía' eða í tveggja manna sóknarlínu en hann getur ekki verið einn fremstur."
Petit segir að ekki sé glóra í taktísku uppleggi Pochettino.
„Hann veit ekkert hvað hann vill gera, er glórulaus og líkamstjáning hans er ekki sannfærandi. Það er eins og hann viti að hann sé á útleið nú þegar," segir Petit.
„Það hafa verið vangaveltur um að Jose Mourinho gæti tekið við í þriðja sinn og verið með John Terry sem aðstoðarmann. Það gæti verið spennandi. Hann gæfi liðinu karakter og persónuleika. Sem stendur er þetta brotið lið og hann gæti komið inn og lagað hlutina. Félagið verður að hætta að kaupa leikmenn og reyna að þróa þá sem eru til staðar. Chelsea þarf að þróa með sér eitthvað einkenni því það er ekkert til staðar núna."
Athugasemdir