Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   mið 07. febrúar 2024 16:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
PSG tilbúið að gera Chloe Kelly að launahæsta leikmanni Evrópu
Kvenaboltinn
Chloe Kelly.
Chloe Kelly.
Mynd: EPA
Paris Saint-Germain hefur áhuga á því að fá ensku landsliðskonuna í sínar raðir.

Samkvæmt Daily Mail, þá er PSG tilbúið að gera Kelly býsna gott tilboð.

PSG er tilbúið að gera hana að launahæstu fótboltakonu í Evrópu. Ekki kemur fram nákvæmlega hversu há launin yrðu.

Kelly, sem skoraði sigurmark Englands á Evrópumótinu sumarið 2022, verður samningslaus 2025 og því gæti City freistast til að selja hana í sumar.

Íslenska landsliðskonan Berglind Björg Þorvaldsdóttir er á mála hjá PSG, sem er í augnablikinu í öðru sæti frönsku úrvalsdeildarinnar.
Athugasemdir
banner