Rangers vann Aberdeen 2-1 í skosku úrvalsdeildinni í gær og hefur jafnað Celtic að stigum á toppi deildarinnar. Bæði lið eru með 58 stig og eru þrettán stigum á undan Hearts sem er í þriðja sæti.
Leikurinn í gær var fyrsti leikur Aberdeen undir stjórn Neil Warnock og getur reynsluboltinn verið ánægður með viljann og baráttuna í sínu liði. Þeir mættu hinsvegar betra liði í gær.
Rabbi Matondo kom Rangers yfir eftir aðeins sjö mínútna leik eftir mistök Kelle Roos markvarðar Aberdeen. Bojan Miovski jafnaði en á 72. mínútu skoraði Todd Cantwell sigurmarkið.

Phillipe Clement stjóri Rangers vill halda sínum mönnum á jörðinni og þó liðið sé búið að jafna Celtic segir hann að menn séu ekki farnir að hugsa um titilinn. Gamla klisjan er dregin fram, einn leikur tekinn fyrir í einu.
Celtic er í efsta sætinu með einu marki meira en Rangers í markatölu.
Athugasemdir