Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   mið 07. febrúar 2024 09:12
Elvar Geir Magnússon
Ratcliffe hefur fundað með borgarstjóranum um Old Trafford
Það hefur mikill drifkraftur þegar komið inn hjá Manchester United með Sir Jim Ratcliffe, þó enska úrvalsdeildin eigi enn eftir að staðfesta kaup hans á 25% hlut í félaginu.

Enskir fjölmiðlar segja Ratcliffe vera kominn á fulla ferð með að reyna að endurnýja Old Trafford. Hann hefur fundað um þörfina á endurnýjun á leikvanginum eða að nýr verði reistur.

Hann hefur meðal annars rætt við Andy Burnham borgarstjóra í Manchester og vill fá stuðning frá yfirvöldum þar sem nýr leikvangur myndi hafa mikil áhrif á samfélagið og skapað ný störf.

Old Trafford þarfnast viðamikilla endurbóta en öll aðstaða er barn síns tíma og þakið lekur eins og stuðningsmenn annarra liða hafa gert mikið grín að.

Enskir fjölmiðlar segja að Ratcliffe tali um að vilji reisa 'Wembley norðursins', leikvang sem er að svipaðri stærð og þjóðarleikvangur Englands sem tekur 90 þúsund áhorfendur.

Athugasemdir
banner