Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   mið 07. febrúar 2024 20:32
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sjáðu mörkin: Origi og Gallagher með sín fyrstu mörk - Jackson tvöfaldaði forystuna

Divock Origi skoraði sitt fyrsta mark í treyju Nottingham Forest í kvöld en hann kom liðinu yfir gegn Bristol City í enska bikarnum.


Hann stýrði boltanum í netið af stuttu færi eftir skalla frá Felipe. Jason Knight jafnaði metin fyrir Bristol City en staðan er jöfn þegar skammt er til loka fyrri hálfleiks.

Chelsea er tveimur mörkum yfir gegn Aston Villa á Villa Park eftir rúmlega tuttugu mínútna leik.

Conor Gallagher kom liðinu yfir en þetta var fyrsta mark hans á tímabilinu. Chelsea vann boltann á miðjunni og komst fljótt inn á teiginn, Noni Madueke fékk boltann og lagði hann út á Gallagher sem skroaði.

Tíu mínútum síðar tvöfaldaði Nicolas Jackson forystuna þegar hann skallaði boltann í netið eftir fyrirgjöf frá Malo Gusto.


Athugasemdir
banner
banner
banner