Atletico Madrid 0 - 1 Athletic
0-1 Alejandro Berenguer ('25 , víti)
Atletico Madrid og Athletic Bilbao mættust í fyrri leik liðanna í undanúrslitum spænska konungsbikarsins á Metropolitano vellinum í kvöld.
Atletico Madrid byrjaði leikinn betur en tókst ekki að skapa sér alvöru marktækfæri.
Bilbao fékk vítaspyrnu á 25. mínútu þegar Reinaldo braut á Benat Prados. Alex Berenguer sendi Jan Oblak í rangt horn og kom liðinu yfir.
Inigo Lekue bjargaði meistaralega á línu frá Angel Correa seint í leiknum. Atletico Madrid fékk síðan vítaspyrnu en hún var dregin til baka og rangstaða dæmd í aðdragandanum.
Fleiri mörk urðu ekki skoruð og er Bilbao því með forystu fyrir seinni leikinn á heimavelli sem fram fer fimmtudaginn 29. febrúar.
Athugasemdir




