Það er mikil pressa á Mauricio Pochettino, stjóra Chelsea, þessa stundina en Lundúnafélagið er í neðri hluta ensku úrvalseildarinnar eftir tap gegn Úlfunum um liðna helgi.
Frammistaða Chelsea hefur verið gagnrýnd harðlega í enskum fjölmiðlum, sem og annars staðar. Pochettino fór á fréttamannafund í gær þar sem kvaðst óánægður með gagnrýni fjölmiðla.
„Eftir að hafa tapað gegn Liverpool þá var sagt: 'Algert klúður. Sjáið Chelsea, hversu slæmt'. Nú tapaði Liverpool gegn Arsenal og ég heyrði ekkert um það, samt voru úrslitin svipuð þegar við spiluðum við Liverpool," sagði Pochettino.
James Pearce, sem skrifar um Liverpool fyrir The Athletic, ákvað að svara þessum ummælum Pochettino á X (áður Twitter). Hann er á því máli að þau séu glórulaus.
„Maður undir pressu að segja eitthvað sem meikar nákvæmlega engan sens," segir Pearce.
„Þetta var fyrsti tapleikur Liverpool síðan í september og þeir eru enn á toppnum. Chelsea er í algjöru rugli og eru nær neðstu þremur en efstu fjórum eftir að hafa eytt meira en milljarði punda á síðustu 18 mánuðum."
Liverpool er áfram á toppi deildarinnar en liðið er í harðri baráttu við Arsenal og Manchester City um Englandsmeistaratitilinn.
A man under pressure making absolutely no sense.
— James Pearce (@JamesPearceLFC) February 6, 2024
Liverpool lost for the first time since September and remain top.
Chelsea are a mess - closer to the bottom three than the top four having wasted close to a £1billion over the past 18 months. https://t.co/lOfJbm86Ur
Athugasemdir




