Manchester City gæti neyðst til að minnka hlut sinn í spænska félaginu Girona ef bæði lið verða í Meistaradeildinni á næsta tímabili. UEFA er með málið til skoðunar.
Bæði félög eru hluti af City Football Group (CFG) og takmörk gætu verið sett á leikmannaviðskipti og samskipti milli þessara félaga. Það gæti snert samkomulag um njósnastarfsemi, gögn um leikmannamál og styrktaraðila.
Bæði félög eru hluti af City Football Group (CFG) og takmörk gætu verið sett á leikmannaviðskipti og samskipti milli þessara félaga. Það gæti snert samkomulag um njósnastarfsemi, gögn um leikmannamál og styrktaraðila.
Ef engar breytingar verða á tengslum þessara félaga gæti UEFA bannað öðru þeirra að spila í Meistaradeildinni. Það yrði þá það lið sem endar lægra í sinni deild. Ef bæði lið enda í sama sæti þá verður það Girona sem víkur þar sem enska deildin er ofar á styrkleikalista UEFA.
Ævintýri Girona hefur verið magnað en liðið komst í efstu deild Spánar fyrir átján mánuðum. Það er í öðru sæti spænsku deildarinnar La Liga, tveimur stigum á eftir toppliði Real Madrid.
CFG keypti 44,3% hlut í Girona 2017 og hefur sá hlutur síðan vaxið upp í 47%.
Þegar kaupin voru gerð sagði spænska félagið að það myndi hagnast á tengslum við Manchester City á margan hátt, meðal annars með bættri aðstöðu, vandaðri þjálfun, leikmannaviðskiptum, þróun yngi leikmanna og öflugri markaðsmálum og styrktaraðilum.
Manchester City er núna að reyna að kaupa vængmanninn Savio sem er hjá Girona á láni frá öðru CFG félagi, Troyes í Frakklandi.
Athugasemdir


