Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   mið 07. febrúar 2024 18:40
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Umboðsmaður Enzo Fernandez: Ætlar sér að vera áfram
Mynd: EPA

Það hafa verið fréttir á sveimi um að Enzo Fernandez miðjumaður Chelsea vilji yfirgefa félagið aðeins ári eftir að hafa gengið til liðs við það.


Fernandez gekk til liðs við Chelsea frá Benfica fyrir rúmlega 100 milljónir punda og skrifaði undir átta og hálfs árs samning en liðinu hefur gengið afar illa á tímabilinu og situr í 11. sæti deildarinnar.

Uriel Perez umboðsmaður argentíska landsliðsmannsins segir ekkert til í þessum sögusögnum.

„Leikmaðurinn er ekki að íhuga að fara. Það var ljóst frá upphafi að þetta yrði erfitt því það eru margir nýjir og ungir leikmenn en um leið og púslin fara að smella saman ætlar liðið sér að taka næsta skref," sagði Uriel Perez.

„Enzo Fernandez ætlar sér að vera áfram og ná árangri. Við höfum ekki og ætlum ekki að ræða við önnur félög. Við vitum hvað leikmaðurinn vill. Auðvitað vill hann að félagið sé í betri stöðu en því verður náð með því að leggja hart að sér."


Athugasemdir
banner