Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   mið 07. febrúar 2024 14:30
Elvar Geir Magnússon
Umspil Þjóðadeildar framundan - Hvað er í húfi fyrir kvennalandsliðið?
Icelandair
Kvennalandsliðið berst um að vera í A-deild undankeppninna fyrir EM 2025.
Kvennalandsliðið berst um að vera í A-deild undankeppninna fyrir EM 2025.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenska kvennalandsliðið mun mæta Serbíu í tveggja leika einvígi um hvort liðið verður í A-deild undankeppninnar fyrir EM 2025. Liðið sem tapar í þessu umspili verður í B-deildinni.

Fyrri leikurinn verður í Serbíu þann 23. febrúar og sá seinni á Kópavogsvelli 27. febrúar en núna á föstudaginn mun Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari tilkynna landsliðshópinn á fréttamannafundi.

Hvað er í húfi?
Nýtt fyrirkomulag er í undankeppninni og hún er styrkleikaröðuð eftir árangri Þjóðadeildarinnar. Með því að vera í A-deildinni er mun meiri möguleiki á að komast í lokakeppnina sem haldin verður í Sviss 2025.

Í undankeppni EM munu tvö efstu liðin í hverjum riðli A-deildarinnar komast beint í lokakeppnina og önnur sæti munu ráðast í gegnum umspil.

Báðir leikirnir spilaðir um miðjan dag
Þar sem ekki er hægt að leika á Laugardalsvelli vegna vetrarveðurs verður heimaleikur Íslands á Kópavogsvelli. Flóðljósin þar standast ekki kröfur UEFA og flautað verður til leiks 14:30 á þriðjudeginum 27. febrúar.

Gera verður ráð fyrir því að úrslitin ráðist mögulega eftir framlengingu og vítakeppni.

Fyrri leikurinn verður einnig spilaður um miðjan dag í Stara Pazova rétt fyrir utan Belgrad. Hann verður spilaður 15:00 á föstudeginum 23. febrúar.
Athugasemdir
banner
banner
banner