Arsenal, Liverpool og City vilja Collins - Salah glaður til í að vera áfram hjá Liverpool - Man Utd hyggst selja markverði
   fim 26. febrúar 2026 12:49
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Man Utd hætti við Osimhen út af Afríkukeppninni
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Benni McCarthy, fyrrum leikmaður Porto og Blackburn og fyrrum hluti af þjálfarateymi Manchester United, segir að Manchester United hafi skoðað að kaupa framherjann VIctor Osimhen af Napoli en hætt við það út af Afríkukeppninni.

Osimhen var heitur biti á markaðnum eftir 26 marka tímabil með Napoli 2022-23 þegar ítalska liðið vann titilinn í fyrsta sinn í 33 ár.

McCarthy var þá í þjálfarateymi Erik ten Hag og taldi að Osimhen myndi smellpassa inn í lið United. McCarthy segir að Osimhen hafi á tímapunkti verið efstur á lista.

„Ef þú eyðir 100 milljónum punda í leikmann, þá viltu ekki missa hann í Afríkukeppnina," segir McCarthy í þættinum Newsday á BBC World Service.

„Ég held að hann hefði getað gert mjög góða hluti hjá United. En AFCON var of mikil hindrun. Að vera án hans í svona mörgum mikilvægum leikjum á meðan mótinu stendur, það hefur áhrif á liðið að vera ekki með aðalframherjann. Þess vegna var ákvörðunin tekin. Stór partur í henni var Afríkukeppnin og nafn Osimhen var tekið af lista - ekki áhugi út af því," segir McCarthy.

Í ágúst 2023 var Rasmus Höjlund svo keyptur frá Atalanta. Hann hefur skorað 26 mörk í 95 leikjum og er núna á láni hjá Napoli í Serie A. Osimhen, sem er 27 ára Nígeríumaður, fór frá Napoli Galatasaray í september 2024 á láni og var svo keyptur síðasta sumar.

Afríkukeppnin er spiluð á tveggja ára fresti og geta félög misst leikmenn í burtu í rúman mánuð um mitt tímabilið.
Athugasemdir
banner
banner
banner