Arsenal, Liverpool og City vilja Collins - Salah glaður til í að vera áfram hjá Liverpool - Man Utd hyggst selja markverði
   fim 26. febrúar 2026 08:45
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Yfirgaf Bernabeu í sjúkrabíl - „Við vorum mjög hræddir"
Mynd: EPA
Það var óhugnalegt atvik í leik Real Madrid og Benfica í Meistaradeildinni í gær þegar Raul Asencio, varnarmaður Real Madrid, þurfti að fara meiddur af velli.

Asencio og Aurelien Tchouameni skullu saman en sá síðarnefndi var fljótur að jafna sig. Asencio lá hins vegar eftir og læknateymi Real þorði ekki að hreyfa við honum.

Hann var síðan borinn af velli með hálskraga og var fluttur með sjúkrabíl á sjúkrahús.

„Við vorum mjög hræddir þegar við sáum Asencio fara af velli á börum en það er útlit fyrir að þetta sé ekki mjög slæmt. Eitthvað í hálsinum en virðist ekki slæmt," sagði Alvaro Arbeloa, stjóri Real Madrid.
Athugasemdir
banner
banner