Stjarnan hefur náð samkomulagi við Huldu Hrund Arnarsdóttur um framlengingu á samningi hennar.
Hulda gekk til liðs við félagið árið 2023 frá uppeldisfélaginu sínu Fylki. Hún hefur spilað 68 leiki í bláu treyjunni.
Hulda gekk til liðs við félagið árið 2023 frá uppeldisfélaginu sínu Fylki. Hún hefur spilað 68 leiki í bláu treyjunni.
„Hún hefur fest sig í sessi sem bæði áræðin og kraftmikill leikmaður sem leggur mikið til liðsins, jafnt innan vallar sem utan. Það er því mikið fagnaðarefni að hún haldi áfram í bláu treyjunni," segir í færslu félagsins.
„Það er mikið gleðiefni að Hulda hafi framlengt og taki slaginn áfram með okkur. Reynsla hennar og karakter vega þungt fyrir liðið og ég hlakka til áframhaldandi samstarfs á næstu árum.“ sagði Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar.
Athugasemdir




