Belgi orðaður við Man Utd - Óskalisti Alonso ef hann tekur við Liverpool - Juventus veitir Arsenal samkeppni um Goretzka
   fim 26. febrúar 2026 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Arbeloa: Það verður pottþétt City, alveg eins og síðustu 7 árin
Mynd: EPA
Real Madrid komst í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar eftir sigur á Benfica í viðburðaríkri viðureign. Liðið getur annað hvort mætt Man City eða Sporting í 16-liða úrslitum en dregið verður á morgun.

Real og Man City hafa mæst síðustu fjögur ár í útsláttakeppninni en liðin mættust í deildarkeppninni í ár þar sem City vann 2-1.

Alvaro Arbeloa, stjóri Real Madrid, er sannfærður um að City verði næsti andstæðingur liðsins.

„Það verður pottþétt Man City, eins og síðustu sjö ár," sagði Arbeloa en Thibaut Courtois, markvörður Real, tók í sama streng.

„Við vitum öll að við munum dragast gegn Man City á föstudaginn," sagði Courtois.
Athugasemdir
banner
banner