Arsenal, Liverpool og City vilja Collins - Salah glaður til í að vera áfram hjá Liverpool - Man Utd hyggst selja markverði
   fim 26. febrúar 2026 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Semja við Njarðvík og fara á lán
Lengjudeildin
Mynd: Njarðvík
Andrés Már Kjartansson og Abdallah Rúnar Awal hafa skrifað undir samninga við Njarðvík sem gilda út árið 2028. Þeir fara báðir á láni frá félaginu fyrir komandi tímabil.

Tilkynning félagsins
Andrés Már Kjartansson og Abdallah Rúnar Awal hafa gert samninga við Knattspyrnudeild Njarðvíkur sem gilda út árið 2028.
Báðir munu halda í framhaldinu á lán frá Njarðvík og öðlast vonandi mikilvægar mínútur í meistaraflokksfótbolta.

Andrés fer til Árbæjar í 3.deildina, og Abdallah til nágranna okkar og vina í Víði Garði, þar sem hann hittir Adolf Þór Haraldsson sem fór einnig á lán til þeirra í síðustu viku.

Andrés sem er markmaður er að gera sinn annan samning við Njarðvík, en hann er fæddur árið 2005, og kemur upprunalega frá HK.

Abdallah er uppalinn Njarðvíkingur og er að gera sinn fyrsta meistaraflokks samning, en Abdallah er fæddur árið 2007.
Knattspyrnudeildin óskar þeim félögum til hamingju með samningana sína, og óskar þeim og liðum þeirra góðs gengis í sumar!


Athugasemdir
banner
banner
banner