Liðsfélagarnir Milos Kerkez og Mohamed Salah hjá Liverpool eru orðnir nánir vinir. Það hefur ekki farið framhjá þeim sem fylgja þeim á Instagram.
Kerkez gekk í raðir Liverpool frá Bournemouth í fyrra en hann og Salah hafa verið að eyða talsverðum tíma saman utan vinnutíma.
Kerkez gekk í raðir Liverpool frá Bournemouth í fyrra en hann og Salah hafa verið að eyða talsverðum tíma saman utan vinnutíma.
Salah birti mynd af Kerkez við grillið og þá birti ungverski bakvörðurinn mynd af verðlaunaskáp sem er í stofunni heima hjá Salah.
Þó Egyptinn hafi ekki sýnt sínar bestu hliðar á þessu tímabili hefur hann átt magnaðan feril og unnið átta stóra titla á níu árum hjá Liverpool.
Hann hefur unnið Meistaradeildina, ensku deildina tvisvar, HM félagsliða, FA-bikarinn og fleiri titla í Liverpool treyjunni.
Svo eru það hin fjölmörgu einstaklingsverðlaun en fjórum sinnum hefur hann unnið gullskó ensku úrvalsdeildarinnar.
Verðlaunaskápurinn er stór og veglegur. Þar má meðal annars finna eftirlíkingu af Meistaradeildarbikarnum.
Salah býr við Mersey ána ásamt Magi eiginkonu sinni og tveimur dætrum þeirra.
Athugasemdir



