Gibbs-White, Anderson, Onana og Nmecha á blaði Man Utd - Diomande orðaður við ensku úrvalsdeildina - Cambiaso eftirsóttur
   mið 25. febrúar 2026 21:33
Elvar Geir Magnússon
Rosalegur viðbúnaður vopnaðra hermanna fyrir leik Íslands
Mynd: EPA
Mexíkó og Ísland mætast í vináttulandsleik í kvöld. Leikurinn hefst kl. 20:00 að staðartíma í Queretaro, sem er kl. 02:00 í nótt að íslenskum tíma.

Leikurinn verður í beinni textalýsingu hér á Fótbolta.net

Á myndbandi sem birt er í mexíkóskum miðlum má sjá vopnaða liðsmenn lögreglu og hersins að gera sig klára fyrir leikinn en gríðarleg öryggisgæsla er í kringum hann.

Talið var líklegt að leiknum yrði aflýst en ákveðið var á endanum að hann yrði spilaður með hæsta öryggisstig.

Óeirðir hafa verið víða í Mexíkó síðustu daga eftir að glæpaforinginn Nemesio Oseguera Cervantes féll í bardögum við mexíkóska herinn. Mörgum kappleikjum í landinu hefur verið frestað.

Hér má sjá myndband þar sem lögreglan og herinn undirbúa sig fyrir viðbúnað við leikvanginn.


Athugasemdir
banner