Arsenal, Liverpool og City vilja Collins - Salah glaður til í að vera áfram hjá Liverpool - Man Utd hyggst selja markverði
   fim 26. febrúar 2026 00:19
Elvar Geir Magnússon
Hvar horfði Mourinho eiginlega á leikinn?
Jose Mourinho, stjóri Benfica, stýrði æfingu í Madríd á þriðjudag.
Jose Mourinho, stjóri Benfica, stýrði æfingu í Madríd á þriðjudag.
Mynd: EPA
Mourinho horfði á leikinn í þessari rútu.
Mourinho horfði á leikinn í þessari rútu.
Mynd: EPA
Jose Mourinho stjóri Benfica var í banni þegar liðið lék gegn Real Madrid á hans fyrrum heimavelli, Santiago Bernabeu.

Margir biðu spenntir eftir endurkomu Mourinho en hann var hvergi sjáanlegur. Hann mætti aldrei í sætið sem honum var útvegað í stúkunni.

Spænska blaðið Marca greinir frá því að Mourinho hafi horft á leikinn úr liðsrútunni, sem var í bílastæðahúsinu á leikvangnum. Margir fjölmiðlamenn urðu fyrir miklum vonbrigðum þegar stjórinn umdeildi sást hvergi.

Ummæli Mourinho eftir fyrri viðureignina, þar sem Gianluca Prestianni var sakaður um kynþáttaníð, vöktu talsverða reiði. Í lokin á þeim leik fékk Mourinho rautt og var því í banni í seinni leiknum.

Hann fylgdist með úr rútunni þegar Real Madrid vann 2-1 sigur og þar með 3-1 sigur samtals í einvíginu.

Mourinho fór með til Madrídar en lét lítið fyrir sér fara. Hann mætti ekki á fjölmiðlafund fyrir leikinn en ekki er skylda fyrir stjóra í leikbanni að mæta.


Athugasemdir
banner