Cristiano Ronaldo hefur keypt fjórðungshlut í spænska B-deildarfélaginu Almeria.
Ronaldo, sem er leikmaður Al-Nassr í Sádi-Arabíu, hefur ekki farið leynt með áætlanir sínar um að fjárfesta í fótboltafélögum og stefnir á að verða meirihlutaeigandi á félagi eftir ferilinn.
Hann stofnaði nýlega fjárfestingafélagið CR7 og kaupir hlutinn í gegnum það.

Í yfirlýsingu segist Ronaldo hlakka til að hjálpa félaginu að vaxa og það sé svo sannarlega tækifæri til þess.
Sádi-arabíska fjárfestingasamsteypan Al-Khereiji eignaðist meirihluta í Almeria á síðasta ári með Mohammed Al-Khereiji, sem er nú forseti félagsins, í fararbroddi.
Almeria er sem stendur í þriðja sæti spænsku B-deildarinnar og í harðri baráttu um að komast upp í La Liga. Lið féll þaðan fyrir tveimur árum.
Athugasemdir