Arsenal, Liverpool og City vilja Collins - Salah glaður til í að vera áfram hjá Liverpool - Man Utd hyggst selja markverði
   fim 26. febrúar 2026 23:40
Brynjar Ingi Erluson
Lék allan leikinn í dýrmætum sigri
Aron Einar var í vörn Al Gharafa
Aron Einar var í vörn Al Gharafa
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn með Al Gharafa sem vann mikilvægan 3-2 sigur á Al Rayyan í stjörnudeildinni í Katar í kvöld.

Fyrrum landsliðsfyrirliðinn var í hjarta varnarinnar hjá Al Gharafa sem kom til baka.

Gestirnir komust yfir eftir vandræðagang í teignum en í síðari hálfleik náði Al Gharafa að snúa leiknum sér í hag með tveimur mörkum á fjórum mínútum.

Þriðja markið gerði síðan Joselu, fyrrum leikmaður Real Madrid, með þrumufleyg.

Al Rayyan minnkaði muninn undir lok leiks er Roger Guedes skoraði úr vítaspyrnu og nokkrum mínútum síðar sá Saifeldeen Fadlalla, liðsfélagi Arons, að líta tvö gul á nokkrum mínútum.

Sem betur fer fyrir Al Gharafa kom það ekki að sök. Liðið er í öðru sæti með 34 stig, fjórum stigum frá toppliði Al Sadd eftir sautján umferðir.
Athugasemdir
banner
banner
banner