Heimild: Vísir
Fréttamannafundur Freys Alexanderssonar, þjálfara Brann, tók óvænta stefnu þegar hann fékk skyndilega skilaboð frá goðsögninni Carlo Ancelotti á miðjum fundi.
Brann er á Ítalíu þar sem norska liðið leikur í kvöld seinni leik sinn gegn Bologna í Evrópudeildinni. Bologna er með 1-0 forystu í einvíginu eftir fyrri leikinn.
Brann er á Ítalíu þar sem norska liðið leikur í kvöld seinni leik sinn gegn Bologna í Evrópudeildinni. Bologna er með 1-0 forystu í einvíginu eftir fyrri leikinn.
Á fundinum sagði Freyr frá áhuga sínum á ítalska boltanum og að hann hefði alltaf á sunnudögum horft á deildina í íslensku sjónvarpi á sínum tíma.
Þá lýsti hann yfir aðdáun sinni á Ancelotti, sem nú stýrir Brasilíu, en hann er einn merkasti stjóri sögunnar. Fimm sinnum hefur hann unnið Meistaradeildina, oftar en nokkur annar stjóri. Þá hefur hann orðið deildarmeistari í öllum fimm stærstu deildum Evrópu.
Ancelotti vill heimsækja Ísland
„Ég er mikill aðdáandi Carlo Ancelotti og hef fylgst mjög náið með honum og einnig þjálfað nokkra leikmenn sem hafa áður spilað undir hans stjórn. Ég hef lesið allar bækur um hann og reyni að sanka að mér eins miklum upplýsingum um hann og mögulegt er,“ sagði Freyr en Vísir fjallaði um uppákomuna skemmtilegu.
Stuttu eftir þessi ummæli Freys bað Marco Nosotti, fréttamaður Sky Sports á Ítalíu, um orðið og tilkynnti Frey að hann hefði fengið skilaboð frá sjálfum Ancelotti.
„Carlo Ancelotti skrifaði mér: 'Ég vil heimsækja Ísland',“ sagði Marco við Frey sem var hálforðlaus.
„Meinarðu þetta? Fékkstu skilaboð frá Carlo? Ég mun bjóða honum í stóran kvöldverð á besta veitingastaðnum á Íslandi. Það er víst. Ég er alveg orðlaus," sagði Freyr.
Ancelotti er gamall kunningi Nosotti og ólust þeir nánast upp hlið við hlið í æsku á Ítalíu.
Athugasemdir



