Arsenal, Liverpool og City vilja Collins - Salah glaður til í að vera áfram hjá Liverpool - Man Utd hyggst selja markverði
   fim 26. febrúar 2026 10:44
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Skellurinn gegn FH niðurlægjandi en rosalega hollur - Venni vill sóknarmann
'Veturinn er búinn að vera beautiful veðurfarslega, verið gott að vera þjálfari þennan veturinn'
'Veturinn er búinn að vera beautiful veðurfarslega, verið gott að vera þjálfari þennan veturinn'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Liam Daði var seldur til ÍBV.
Liam Daði var seldur til ÍBV.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Marki Arons Snæs í gær fagnað.
Marki Arons Snæs í gær fagnað.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sigurvin Ólafsson - Venni, þjálfari Þróttar, ræddi við Fótbolta.net eftir tapið gegn Víkingi í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins í gær. Hann var spurður út í undirbúningstímabilið til þessa.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 3 -  1 Þróttur R.

„Það hefur gengið nokkuð fínt, hæðir og lægðir. Eins og undirbúningstímabil eru, þá er fínt að lenda í einhverju til þess að takast á við. Veturinn er búinn að vera beautiful veðurfarslega, verið gott að vera þjálfari þennan veturinn. Ég er ánægður með strákana," sagði Venni.

Eftir að hafa lagt Val og KR að velli í Reykjavíkurmótinu tapaði Þróttur 7-0 gegn FH í Lengjubikarnum. Hvað gerðist?

„Það var auðvitað bara mjög sárt og niðurlægjandi, en að sama skapi rosalega hollt. Okkur hefur gengið vel og unnið flesta leiki á undirbúningstímabilinu. Við vorum greinilega orðnir of góðir með okkur sjálfa, áttum mjög lélegan leik, koðnuðum og létum valta yfir okkur. Þegar tíminn hefur liðið aðeins frá þessu þá var þetta gott, en á meðan þetta stóð yfir og nokkra daga á eftir var þetta óþægilegt."

Venni var spurður út í leikmannahópinn. Býstu við frekari styrkingu?

„Við erum alltaf með augun opin. Við erum með góðan mannskap, en ekkert risastóran hóp. Við erum með augun opin ef eitthvað býðst."

Sverrir Páll Hjaltested æfði með Þrótti áður en hann samdi við FH. ÍBV keypti Liam Daða Jeffs af Þrótti og Venni væri alveg til í sóknarmann inn í hópinn.

„Viktor Andri fór frá okkur líka, tveir af okkar sóknarmönnum fóru og Adam Árni kom í staðinn. Ef það er einhver staður á vellinum sem við gætum verið þykkari, þá er það frammi," sagði Venni.
Venni: Ef þetta eru lög þá þarf að óska eftir lagabreytingu
Athugasemdir
banner