Logi Tómasson og félagar hans í Samsunspor eru komnir áfram í 16-liða úrslit Sambandsdeildarinnar eftir öruggan 4-0 sigur á Shkendija í kvöld. Fiorentina, lið Alberts Guðmundssonar, kom sér í vandræði en tókst á endanum að sigla áfram í 16-liða úrslitin.
Sigur Samsunspor var aldrei í hættu. Logi var í byrjunarliðinu hjá tyrkneska liðinu sem rétt marði Shkendija í fyrri leiknum með einu marki gegn engu.
Staðan var markalaus í hálfleik en í þeim síðari völtuðu heimamenn yfir Makedónanna. Framherjinn Marius skoraði tvö og þá gerðu þeir Olivier Ntcham og Cherif Ndiaye sitthvort markið.
Öruggt hjá Samsunspor en ekki alveg eins öruggt hjá Alberti og Fiorentina sem fóru alla leið í framlengingu gegn pólska liðinu Jagiellonia.
Fiorentina vann öruggan 3-0 sigur í fyrri leiknum og var aðeins formsatriði að komast áfram í 16-liða úrslit, en gestirnir voru á öðru máli.
Hinn 19 ára gamli Bartosz Mazurek skoraði tvö mörk í fyrri hálfleik og fullkomnaði síðan þrennuna snemma í þeim síðari.
Þjálfari Fiorentina fór beint í breytingar og setti meðal annars markvörðinn David De Gea inn á ásamt Jack Harrison, Nicolo Fagioli, Manor Solomon og Moise Kean.
Þrátt fyrir það neyddist Fiorentina til að fara í framlengingu og þar tókst þeim að klára dæmið.
Albert kom inn á þegar fimm mínútur voru eftir af fyrri hlutanum og í upphafi síðari hlutans skoraði Fagioli áður en Moise Kean bætti við öðru.
Jesus Imaz náði í fjórða mark Jagiellonia undir lokin, en það var ekki nóg. Hetjuleg barátta hjá þeim pólsku sem lögðu hjarta og sál í verkefnið.
Lokatölur 4-2 Jagiellonia en það var Fiorentina sem vann einvígið og er því komið áfram.
Celje 3 - 2 Drita FC (6-4, samanlagt)
1-0 Svit Seslar ('19 )
2-0 Darko Hrka ('23 )
2-1 Blerim Krasniqi ('26 )
3-1 Svit Seslar ('43 , víti)
3-2 Albert Dabiqaj ('51 )
Fiorentina 2 - 4 Jagiellonia (5-4, samanlagt)
0-1 Bartosz Mazurek ('23 )
0-2 Bartosz Mazurek ('45 )
0-3 Bartosz Mazurek ('49 )
1-3 Nicolo Fagioli ('107 )
2-3 Moise Kean ('114 )
2-4 Jesus Imaz ('118 )
Rijeka 3 - 1 Omonia (4-1, samanlagt)
0-1 Muamer Tankovic ('13 )
1-1 Toni Fruk ('52 )
2-1 Toni Fruk ('67 )
3-1 Daniel Adu-Adjei ('79 )
Samsunspor 4 - 0 Shkendija (5-0, samanlagt)
1-0 Olivier Ntcham ('53 , víti)
2-0 Cherif Ndiaye ('71 )
3-0 Marius Mouandilmadji ('79 )
4-0 Marius Mouandilmadji ('90 )
Athugasemdir



