Arsenal, Liverpool og City vilja Collins - Salah glaður til í að vera áfram hjá Liverpool - Man Utd hyggst selja markverði
   fim 26. febrúar 2026 23:16
Brynjar Ingi Erluson
Algjör skandall í Bologna - „Sorgmæddur en rosalega stoltur“
Freyr Alexandersson
Freyr Alexandersson
Mynd: EPA
Sörensen fær rauða spjaldið frá Bastien
Sörensen fær rauða spjaldið frá Bastien
Mynd: EPA
Freyr Alexandersson, þjálfari Brann í Noregi, segist vera stoltur af sínum mönnum eftir frammistöðuna í einvíginu gegn Bologna í umspili Evrópudeildarinnar.

Brann lagði allt í verkefnið. Það fékk færin í fyrri leiknum sem fór fram í Bergen en tapaði þar, 1-0, og þá var það með yfirhöndina í fyrri hálfleiknum í Bologna í kvöld.

Franski dómarinn Benoit Bastien breytti leiknum fyrir Brann er hann rak Jacob Lungi Sörensen af velli fyrir brot á Remo Freuler, en eftir það tók Bologna yfir og landaði á endanum sigri.

Freysi gat ekki annað en hrósað strákunum fyrir framlagið.

„Við spiluðum stórkostlegan fyrri hálfleik þegar við vorum með ellefu menn inn á. Við sköpuðum mörg vandamál fyrir Bologna og vorum með rétta leikskipulagið. Við vorum að pressa vel og spila með rétta hugarfarinu, en Bologna er hins vegar mjög gott lið og vona ég að þeir fari langt í keppninni.“

„Ég er leiður en ótrúlega stoltur. Þetta eru mjög blendnar tilfinningar, en ég vil samt þakka öllum stuðningsmönnum sem hafa fylgt okkur út um allt og verið magnaðir. Ég vil koma Brann aftur í Evrópu því það myndi hafa svo mikla þýðingu fyrir okkur, stuðningsmennina og Bergen.“

„Ég hef ekki fengið tækifærið til þess að ræða við leikmannahópinn enn, en ég hef hitt nokkra og þeir voru bæði leiðir og stoltir,“
sagði Freyr.

„Ekki fræðilegur möguleiki að þú fáir mig til þess að vera sammála þessari ákvörðun“

Sérfræðingarnir á Viaplay og Bergens Avisens furðuðu sig á rauða spjaldinu sem Sörensen fékk. Það hafi eyðilagt leikinn og að dómarinn hafi fengið tækifæri til þess að taka það til baka.

Sörensen fór vissulega með fótinn of hátt upp í loft og í hné Freuler, en báðir börðust um boltann og þá reyndi Sörensen að draga fótinn til baka þegar hann sá hvert hann stefndi.

Þetta var það sem drap leik Brann.

„Mér fannst þetta strangur dómur. Sörensen reynir að fara með fótinn frá og dómarinn hefði getað séð það og notað VAR til að skoða það,“ sagði Erik Huseklapp, sérfræðingur Viaplay um rauða spjaldið.

Jonas Grönner, sem var einnig að starfa sem sérfræðingur í kringum leikinn, kallaði þetta skandal.

„Þetta er algjör skandall. Það er ekki fræðilegur möguleiki á að þú fáir mig til þess að vera sammála þessu rauða spjaldi,“ sagði hann, en Lars Tjærnås var á annarri skoðun og taldi þetta hafa verið réttan dóm.

„Því miður þá var þetta rétt ákvörðun að gefa rautt spjald á þetta,“ sagði Tjærnås sem var að lýsa leiknum á Viaplay.
Athugasemdir
banner
banner
banner