Juventus er úr leik í Meistaradeildinni eftir tap gegn Galatasaray í umspili um sæti í Meistaradeildinni.
Liðið steinlá 5-2 í fyrri leiknum í Tyrklandi en Juventus beit frá sér á Ítalíu í gær.
Liðið steinlá 5-2 í fyrri leiknum í Tyrklandi en Juventus beit frá sér á Ítalíu í gær.
Liðið náði að jafna einvígið en staðan var 3-0 eftir 90 mínútur en Galatasaray var betri aðilinn í framlengingunni og skoraði tvö mörk.
Luciano Spalletti, stjóri Juventus, skrifaði undir samning í október út tímabilið og Giorgio Chiellini, yfirmaður fótboltamála hjá Juventus, segir að hann muni fá nýtt samningstilboð.
„Það var aldrei spurning, það er í forgangi, við munum hittast fljótlega og fara yfir smáatriðin," sagði Chiellini.
Athugasemdir


