Arsenal, Liverpool og City vilja Collins - Salah glaður til í að vera áfram hjá Liverpool - Man Utd hyggst selja markverði
   fim 26. febrúar 2026 16:39
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Leikmaður Liverpool í 11. sæti á óeftirsóknarverðum lista
Skjóttu!
Skjóttu!
Mynd: EPA
Joe Gomez hefur spilað 300 leiki á meistaraflokksferlinum, hann hefur unnið fjölda titla með Liverpool en það er eitt sem hann á eftir að gera. Það er að skora mark.

Hann hefur aldrei skorað í leik, tókst það ekki hjá Charlton, ekki með enska landsliðinu og hefur ekki tekist það með Liverpool.

Gomez hefur lagt upp tólf mörk sem leikmaður Liverpool en sama hversu oft stuðningsmenn Liverpool kalla á hann að skjóta, þá tekst honum ekki að skora.

Gomez hefur spilað 162 úrvalsdeildarleiki á ferlinum sem gerir hann að 11. leikjahæsta útileikmanninum í sögu deildarinnar sem ekki hefur skorað mark. Það er Opta sem tekur saman.

Kenny Cunningham lék 335 leiki á sínum ferli án þess að skora og er sá leikjahæsti. Tony Hibbert, Des Walker, Richard Shaw, Stephane Henchoz, Danny Simpson, Steve Potts, Lucas Radebe, Alan Kimble og Justin Edinburough eru einnig fyrir ofan Gomez á listanum. Tólf leikir eru fyrir Gomez til að ná næsta manni fyrir ofan á listanum.

Af þessum tíu eiga einungis þeir Hibbert og Cunningham það sameiginlegt að hafa aldrei skorað á ferlinum. Hinir náðu því, en ekki úrvalsdeildinni. Gomez er 28 ára og það er enn nægur tími fyrir hann að skora. Hann getur allavega glaðst yfir titlunum með Liverpool og þeirri staðreynd að hann hefur heldur aldrei skorað sjálfsmark fyrir Liverpool.
Athugasemdir
banner
banner