Mexíkó 4 - 0 Ísland
1-0 Richard Ledezma ('22 )
2-0 Armando Gonzalez ('24 )
3-0 Jesús Gallardo ('59 )
4-0 Brian Gutiérrez ('92 )
Lestu um leikinn
1-0 Richard Ledezma ('22 )
2-0 Armando Gonzalez ('24 )
3-0 Jesús Gallardo ('59 )
4-0 Brian Gutiérrez ('92 )
Lestu um leikinn
Mexíkó heldur áfram að vera með tak á Íslandi og vann öruggan sigur í vináttulandsleik í Queretaro. Leikurinn var utan glugga og lið heimamanna skipað leikmönnum úr MX deildinni á meðan níu leikmenn í byrjunarliði Íslands spila í Bestu deildinni.
Ísland byrjaði leikinn býsna vel. Ágúst Orri Þorsteinsson var að skapa usla og hann fékk dauðafæri til að skora fyrsta mark leiksins en skot hans var varið. Fróðlegt hefði verið að sjá þróunina ef þetta tækifæri hefði nýst.
Það var svo á tveggja mínútna kafla um miðbik fyrri hálfleiks sem Mexíkó skoraði tvö mörk. Fyrst eftir að Anton Ari Einarsson markvörður og Guðmundur Kristjánsson miðvörður rákust saman. Svo eftir fyrirgjöf sem fór framhjá báðum miðvörðum okkar.
Þarna náði Mexíkó tökum á leiknum sem liðið hélt fast utan um alveg til hálfleiks.
Á 59. mínútu kom þriðja mark Mexíkó en það var skallamark eftir horn. Það er rannsóknarefni hversu einn og yfirgefinn Jesús Gallardo var í teignum. Í uppbótartíma kom síðasti naglinn þegar Brian Gutiérrez nýtti sér mistök Höskulds Gunnlaugssonar.
Íslenska liðið náði ekki að koma sér á blað í leiknum og 4-0 sigur Mexíkó, sem sýndi gæði sín, staðreynd. Þetta var eini leikur Íslands í ferðinni og hópurinn heldur nú heim á leið.
Lestu leiklýsingu leiksins
Athugasemdir



