Dýrt að reka Amorim - Klopp ekki að skipta um vinnu - Murillo enn í myndinni hjá Liverpool
banner
   fös 27. febrúar 2026 09:00
Brynjar Ingi Erluson
Benfica sendi frá sér yfirlýsingu vegna fréttaflutnings um Prestianni
Mynd: EPA
Portúgalska félagið hafnar alfarið fréttaflutningi portúgalskra miðla sem halda því fram að Argentínumaðurinn Gianluca Prestianni hafi viðurkennt við liðsfélaga sína að hafa beitt Vinicius Jr, leikmann Real Madrid, kynþáttaníði leik liðanna.

Atvikið átti sér stað í fyrri leik liðanna í umspili Meistaradeildar Evrópu.

Prestianni setti treyjuna yfir munninn og lét einhver ófögur orð falla í garð Vinicius sem hljóp til dómarans sem stöðvaði leikinn.

Það tók rúmar tíu mínútur að róa leikinn niður og skoða hvað Prestianni sagði, en Argentínumaðurinn hefur sjálfur sagt við UEFA að hann hafi hrópað hómófóbískum ummælum í átt að Vinicius en þverneitar að hafa sagt eitthvað rasískt.

A Bola segist aftur á móti hafa heimildir fyrir því að Prestianni hafi viðurkennt við liðsfélaga sína að hann hafi látið orð falla sem vísa í kynþátt Vinicius, en Benfica var ekki lengi að koma með yfirlýsingu og neitar þeim fréttum alfarið.

„Benfica hafnar alfarið fréttaflutningi um að Prestianni hafi sagt hópnum eða stjórn félagsins að hann hafi hreytt rasískum móðgunum í garð Vinicius Jr. Leikmaðurinn hefur beðið liðsfélaga sína afsökunar á atvikinu sem átti sér stað í leiknum gegn Real Madrid. Hann lýstir yfir iðrun vegna umfangs þess og afleiðinga, og um leið fullvissað alla um að hann sé ekki rasisti,“ segir í yfirlýsingu Benfica.

UEFA, fótboltasamband Evrópu, tók ákvörðun um að setja Prestianni í bann í seinni leiknum gegn Real Madrid á meðan það bíður eftir niðurstöðum úr rannsókn atviksins.

Benfica tapaði þeim leik, 1-0, og er því úr leik í Meistaradeildinni.
Athugasemdir
banner
banner