Arsenal, Liverpool og City vilja Collins - Salah glaður til í að vera áfram hjá Liverpool - Man Utd hyggst selja markverði
banner
   fim 26. febrúar 2026 22:14
Brynjar Ingi Erluson
Sambandsdeildin: Palace kláraði dæmið á Selhurst Park - Gísli mætir Vallecano eða Shakhtar
Maxence Lacroix skoraði fyrra mark Palace
Maxence Lacroix skoraði fyrra mark Palace
Mynd: EPA
Gísli Gottskálk er kominn áfram í Sambandsdeildinni
Gísli Gottskálk er kominn áfram í Sambandsdeildinni
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Ensku bikarmeistararnir í Crystal Palace komust áfram í 16-liða úrslit Sambandsdeildarinnar í kvöld með því að leggja Zrinjski Mostar að velli, 2-0, á Selhurst Park.

Palace var mjög ósannfærandi í fyrri leiknum sem spilaður var í Mostar í Bosníu.

Þeim leik lauk með 1-1 jafntefli en Palace náði að gera út um einvígið í kvöld.

Franski miðvörðurinn Maxence Lacroix skoraði með skalla eftir fasta aukaspyrnu Adam Wharton á 36. mínútu.

Palace fékk fjölmörg færi til að gera út um leikinn. Ismaila Sarr klúðraði meðal annars einn á móti marki en annað markið kom fyrir rest.

Það gerði Fílabeinsstrendingurinn Evann Guessand eftir stoðsendingu frá Brennan Johnson í uppbótartíma síðari hálfleiks og þar við sat.

Palace mætir AEK Larnaca eða Mainz í 16-liða úrslitum, en dregið verður á morgun.

AZ Alkmaar flengdi armenska liðið Noah 4-0 í Hollandi eftir að hafa tapað fyrri leiknum 1-0.

Sven Mijnans skoraði tvö og þá gerðu þeir Isak Jensen og Ro-Zangelo Daal eitt á haus.

Gísli Gottskálk Þórðarson kom inn af bekknum á 75. mínútu í 1-0 sigri Lech Poznan á finnska liðinu KuPS. Samanlagður sigur pólska stórliðsins var 3-0.

Lech mætir Rayo Vallecano eða Shakhtar Donetsk í 16-liða úrslitum.

Tékkneska liðið Sigma Olomouc er einnigkomið áfram eftir 2-1 útisigur á Lausanne frá Sviss. Samanlagt vann liðið 3-2 en þetta var svo sannarlega frábær sigur hjá Sigma sem hafnaði í neðsta umspilssætinu í deildarkeppninni á meðan Lausanne var í efsta umspilssætinu.

Úrslit og markaskorarar:

AZ 4 - 0 Noah (4-1, samanlagt)
1-0 Ro-Zangelo Daal ('5 )
2-0 Sven Mijnans ('39 )
3-0 Sven Mijnans ('54 )
4-0 Isak Jensen ('90 )

Crystal Palace 2 - 0 Zrinjski (3-1, samanlagt)
1-0 Maxence Lacroix ('36 )
2-0 Evann Guessand ('90 )

Lausanne 1 - 2 Olomouc (2-3, samanlagt)
0-1 Jachym Sip ('22 )
1-1 Omar Janneh ('35 )
1-2 Antonin Rusek ('44 )

Lech 1 - 0 KuPS (3-0, samanlagt)
1-0 Pablo Rodriguez ('65 )
Athugasemdir
banner
banner