Þýska liðið Stuttgart er komið áfram í 16-liða úrslit Evrópudeildarinnar þrátt fyrir að hafa tapað gegn Celtic á heimavelli í kvöld.
Stuttgart vann fyrri leikinn í Skotlandi 4-1 og fór því pressulaust inn í seinni leikinn.
Gestirnir fengu draumabyrjun er Luke McCowan skoraði eftir aðeins 28 sekúndur eftir hraða sókn.
Celtic tókst ekki að bæta við en Deniz Undav náði að koma boltanum í netið seint í síðari hálfleiknum en markið tekið af vegna rangstöðu í aðdragandanum.
Lokatölur urðu 1-0 Celtic í vil og samanlagt 4-2 fyrir Stuttgart sem er komið áfram.
Robbie Keane stýrði ungverska liðinu Ferencvaros til 2-0 sigurs gegn Ludogorets.
Frábær endurkoma hjá Ferencvaros sem tapaði fyrri leiknum 2-1 á útivelli.
Keane hefur náð góðum árangri í Ungverjalandi og er einn af þeim sem hefur verið orðaður við stjórastöðuna hjá Crystal Palace á Englandi.
Hákon Arnar Haraldsson og félagar í Lille eru 1-0 yfir gegn Rauðu stjörnunni í Serbíu.
Skagamaðurinn er í byrjunarliðinu og er búið að flauta til loka síðari hálfleiks, en framlenging er að hefjast þar sem Rauða stjarnan vann fyrri leikinn með sömu markatölu.
Leikur Viktoria Plzen og Panathinaikos er einnig kominn í framlengingu en staðan þar er 1-1. Andrew Tetteh er búinn að skora öll mörk Panathinaikos í einvíginu.
Sverrir Ingi Ingason er í vörninni hjá Panathinaikos.
Crvena Zvezda 0 - 1 Lille (Framlengt)
0-1 Olivier Giroud ('4 )
Ferencvaros 2 - 0 Ludogorets
1-0 Gabi Kanichowsky ('14 )
2-0 Kristoffer Zachariassen ('30 )
Plzen 1 - 1 Panathinaikos (Framlengt)
0-1 Andreas Tetteh ('9 )
1-1 Karel Spacil ('62 )
Stuttgart 0 - 1 Celtic
0-1 Luke Mccowan ('1 )
Athugasemdir


