Gibbs-White, Anderson, Onana og Nmecha á blaði Man Utd - Diomande orðaður við ensku úrvalsdeildina - Cambiaso eftirsóttur
   mið 25. febrúar 2026 18:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Seinkun á úrslitaleik Reykjavíkurmótsins - Völlurinn snævi þakinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur og Þróttur mætast í kvöld í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins en leikurinn fer fram á Víkingsvelli.

Leikurinn átti upphaflega að hefjast klukkan 19 en búið er að fresta honum um nokkrar mínútur vegna snjókomu.

„Leiknum verður frestað um einhverjar mínútur. Hvorugt lið er byrjað að hita upp vegna mikillar snjókomu. Miðað við það sem ég heyri hefst leikurinn korter yfir sjö," skrifaði Kári Snorrason í textalýsinguna hér á Fótbolti.net.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 1 -  0 Þróttur R.

Unnið er að því að moka snjóinn af vellinum til að gera hann leikhæfann.

Liðin eru byrjuð að hita upp og útlit er fyrir að leikurinn fari af stað klukkan 19:30.
Athugasemdir
banner
banner