Belgi orðaður við Man Utd - Óskalisti Alonso ef hann tekur við Liverpool - Juventus veitir Arsenal samkeppni um Goretzka
   fim 26. febrúar 2026 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lilja Björg framlengir á Skaganum
Kvenaboltinn
Mynd: ÍA
Lilja Björg Ólafsdóttir hefur skrifað undir nýjan samning við ÍA sem gildir út komandi tímabil.

Lilja er uppalin á Skaganum en hún hefur spilað 38 leiki og skorað eitt mark fyrir liðið.

Hún mun spila með ÍA í sumar eftir að hafa útskrifast úr háskóla í Bandaríkjunum.

„Lilja er fjölhæfur leikmaður sem getur bæði spilað sem framherji og hafsent. Hún býr yfir mikilli útsjónarsemi og er með öflugan vinstri fót," segir í færslu félagsins.
Athugasemdir
banner
banner