Arsenal, Liverpool og City vilja Collins - Salah glaður til í að vera áfram hjá Liverpool - Man Utd hyggst selja markverði
   fös 27. febrúar 2026 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Keyptur frá nágrönnunum fyrir metfé
Mynd: Hammarby
Sænska úrvalsdeildarfélagið Hammarby hefur sett nýtt met í deildinni með kaupum sínum á Victor Lind frá nágrönnunum í Brommapojkarna.

Lind er 24 ára gamall sóknarmaður sem lék með Brommapojkarna á síðustu leiktíð eftir að hafa spilað áður með Midtjylland, Ham/Kam, Vejle og Norrköping.

Danski leikmaðurinn skoraði 10 mörk fyrir Brommapojkarna í sænsku deildinni en hann mun nú spila fyrir nágranna þeirra í Hammarby næstu þrjú árin.

Samkvæmt sænsku blöðunum borgar Hammarby 2,6 milljónir evra fyrir Lind sem gerir hann að dýrasta leikmanni sem hefur farið á milli sænskra félaga og um leið að dýrasta leikmanni deildarinnar.

Alvöru yfirlýsing frá Hammarby sem hafnaði í öðru sæti deildarinnar á síðustu leiktíð, þrettán stigum á eftir óvæntum meisturum Mjällby sem unnu deildina í fyrsta sinn í sögu félagsins.


Athugasemdir
banner
banner
banner