Arsenal, Liverpool og City vilja Collins - Salah glaður til í að vera áfram hjá Liverpool - Man Utd hyggst selja markverði
   fim 26. febrúar 2026 11:36
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Lengjubikarinn: Viktor Andri með þrennu í öruggum sigri
Mynd: Fjölnir
Fjölnir 5 - 0 Kári
1-0 Árni Steinn Sigursteinsson ('3)
2-0 Patryk Hryniewicki ('35)
3-0 Viktor Andri Hafþórsson ('58)
4-0 Viktor Andri Hafþórsson ('82)
5-0 Viktor Andri Hafþórsson ('90)
Rautt spjald: Viktor Gaciarski ('89, Kári)

Fjölnir vann í gær 5-0 sigur á Kára í B-deild Lengjubikarsins. Liðin mættust í Egilshöll og leiddu heimamenn í Fjölni 2-0 í hálfleik. Árni Steinn og Patryk Hryniewicki skoruðu mörk Fjölnis í fyrri hálfleiknum.

Viktor Andri Hafþórsson tók sig svo til og skoraði þrennu í seinni hálfleiknum og Fjölnir vann að lokum mjög öruggan sigur á Kára. Í stöðunni 4-0 fékk Viktor Gaciarski að líta rauða spjaldið í liði Kára.

Bæði lið verða í 2. deild í sumar, Kári hélt sér uppi í deildinni í fyrra en Fjölnir féll úr Lengjudeildinni.

Fjölnir er með sex stig eftir tvo leiki í riðli eitt en Kári er án stiga. KV er einnig með sex stig í riðlinum eftir sigra gegn Kára og Augnabliki.
Athugasemdir
banner
banner