ÍA lagði á dögunum inn annað tilboð í Elmar Kára Enesson Cogic sem er leikmaður Aftureldingar. Frá þessu sagði Albert Brynjar Ingason í Dr. Football í dag. Fótboti.net hefur fengið staðfest að ÍA lagði fram tilboð nýlega og var því hafnað.
Elmar Kári er öflugur sóknarmaður sem raðaði inn mörkum í Lengjudeildini 2023 (17) og 2024 (11). ÍA reyndi að kaupa hann fyrr í vetur en þá hafnaði Afturelding líka tilboði félagsins. Afturelding vill ekki missa Elmar frá sér.

Elmar er 24 ára hægri kantmaður sem skoraði fjögur mörk og lagði upp tvö í 22 leikjum í Bestu deildinni í fyrra. Meiðsli settu smá svip á hans tímabil, komu í veg fyrir að hann gæti spilað meira.
ÍA vill fá inn sóknarmann fyrir mót og hefur reynt við bæði Tryggva Hrafn Haraldsson hjá Val og Elmar Kára hjá Aftureldingu. Bæði Tryggvi og Elmar verða samningslausir eftir komandi tímabil.
Athugasemdir