Tyrkneski markvörðurinn Altay Bayindir er á förum frá Man Utd í sumar en hann gengur til liðs við Besiktas. Tyrkneski miðillinn Fanatik greinir frá þessu.
Samkvæmt heimildum Fanatik hafa félögin komist að samkomulagi um rúmlega 4 milljón punda verðmiða og Bayindir mun ganga til liðs við Besiktas um leið og sumarglugginn opnar.
Bayindir er 27 ára gamall en hann gekk til liðs við United frá Fenerbahce árið 2023.
Hann hefur spilað 17 leiki fyrir liðið. Hann kom við sögu í sex leikjum í deildinni á þessu tímabili áður en Senne Lammens gekk til liðs við félagið og eignaði sér stöðuna.
Athugasemdir



