Ivan Toney dreymir um að fara með Englandi á HM í sumar en hann segist ekki hafa átt neitt samtal við enska landsliðsþjálfarann, Thomas Tuchel, um þann möguleika.
„Auðvitað er ég með augun á HM. En ég get bara stjórnað því sem ég get stjórnað, sem er að reyna skora og gera vel fyrir liðið mitt hér," segir Toney sem spilar með Al-Ahli í Sádi-Arabíu. Hann ræddi við talkSPORT.
„Auðvitað er ég með augun á HM. En ég get bara stjórnað því sem ég get stjórnað, sem er að reyna skora og gera vel fyrir liðið mitt hér," segir Toney sem spilar með Al-Ahli í Sádi-Arabíu. Hann ræddi við talkSPORT.
„Ég er viss um að ég fái athygli ef ég skora mörk og það komi mér nær hópnum. En það er mikið af öðrum frábærum framherjum og mikil samkeppni."
„Ég er viss um að þjálfarinn mun velja besta mögulega liðið til að vinna HM í sumar. Ég hef ekki átt neitt samtal við hann og ég býst ekki við því að það muni verða, því hann er með svo marga sem hann þarf að fylgjast með. Ég er viss um að hann er með auga á mér og sér hvað ég er að gera. Ég þarf bara að einbeita mer að mér sjálfum, set hausinn niður og held áfram að skora mörk. Ég veit hvað ég get gert fyrir liðið og mörk eru hluti af mínum leik. Vonandi er það nóg," segir Toney sem er 29 ára og á að baki sjö landsleiki fyrir England.
Hann var keyptur til Al-Ahli sumarið 2024 og hefur unnið tvö titla í Sádi-Arabíu. Hann er í samkeppni við menn eins og Harry Kane, Ollie Watkins, Marcus Rashford, Dominic Solanke og Dominic Calvert-Levin um sæti í landsliðinu.
Athugasemdir



