Síðustu leikirnir í umspili Evrópudeildarinnar og Sambandsdeildar Evrópu hefjast klukkan 20:00 í kvöld.
Freyr Alexandersson fer með lærisveina sína í Brann til Bologna en þar þarf að vinna upp eins marks mun frá fyrri leiknum sem fór fram í Noregi í síðustu viku.
Jón Dagur Þorsteinsson og Kristall Máni Ingason eru áfram í byrjunarliðinu. Eggert Aron Guðmundsson og Sævar Atli Magnússon eru ekki með vegna meiðsla.
Bologna: Skorupski; Joao Mario, Vitik, Lucumí, Zortea; Freuler, Moro; Bernardeschi, Ferguson, Rowe; Castro
Brann:Dyngeland; De Roeve, Pallesen, Boakye, Soltvedt; Ingason, Sorensen, Myhre; Mathisen, Holm, Thorsteinsson.
Vitor Pereira mun leiða sína menn í Nottingham Forest gegn gömlu lærisveinunum í Fenerbahce. Forest vann útileikinn 3-0.
Forest: Ortega; Hutchinson, Jair Cunha, Murillo, Morato, Williams; Anderson, Yates, Dominguez, McAtee; Lucca
Fenerbahce: Çetin; Brown, Guendouzi, Efe, Müldür; Aydin, Yüksek, Kanté; Nene, Chérif, Akturkoglü.
Í Sambandsdeildinni mun Crystal Palace taka á móti Zrinjski Mostar frá Bosníu. Oliver Glasner tekur enga sénsa og notar gríðarlega sterkt lið til þess að koma þessu yfir línuna. Fyrri leikurinn endaði 1-1 í Mostar.
Byrjunarlið Palace: Henderson; Richards, Lacroix, Canvot; Muñoz, Wharton, Kamada, Mitchell; Guessand, Sarr; Strand Larsen
Gísli Gottskálk Þórðarson er á bekknum hjá Lech Poznan sem mætir KuPS frá Finnlandi. Poznan er 2-0 yfir í einvíginu.
Athugasemdir




